Elísabet Benónýsdóttir
Senda EB post

8.12.03


Var að búa til blogg-síðu fyrir Arnar Bjarka. Þar ætlum við mæðgurnar að skrifa smá fréttir af honum og kannski setja inn eina og eina mynd hér og þar.


17.7.03


Hef ekki kíkt á þessa bloggsíðu mjög lengi. Datt í hug að kíkja hér inn í kvöld og laga ruglið sem hefur verið á textanum. Átti eftir að setja "íslensku" stillinguna á eftir að bloggið fór í sparifötin. Annars hef ég haft það afspyrnu gott í sumar. Er í 2,5 eininga sumarkúrs í framhaldsdeildinni í Kennó sem er 2,5 einingum og mikið yfir sumartímann. Var reyndar búin að skrá mig í 5 einingar en féllust svo hendur. Ákvað að eiga eitthvað líf með fjölskyldunni og litla manninum mínum honum Arnari Bjarka sem verður bráðum 5 mánaða. Hann dafnar mjög vel og er síkátur. Við skelltum okkur til Vestmannaeyja á goslokahátíðina og strax helgina eftir í sumarbústað í Brekkuskógi. Síðan höfum við dúllað okkur heima á yndislega sólpallinum og buslað í sundlauginn þar. Við höfum verið svo heppin að fá til okkar fullt af skemmtulegum gestum þannig að hér hefur verið líf og fjör.

Ég og Arndís Erna vorum að koma af alveg frábærum tónleikum hér í Hafnarfirði. Arnar Þór og Guðný Birna fluttu 18 mjög skemmtileg lög sem allir kannast við. Þetta gerðu þau af stakri snilld svo tíminn flaug og allir skemmtu sér vel. Þau ætla að taka að sér að syngja í brúðkaupum og skírnum. Arnar Þór söng við skírnina hans Arnars Bjarka og stóð sig með prýði!!!

Höfum staðið okkur ágætlega að bæta við myndum á fjölskylduvefinn okkar þ.e. myndum af litla krúttinu (er nú ekki viss um að fólk væri eins duglegt að skoða myndir af okkur hinum í fjölskyldunni :-? ) Gaman að heyra hvað ótrúlega margir ættingar og vinir hafa ratað á síðuna.

Bestu kveðjur til ykkar allra

Nóg í kvöld. Góða nótt!!!


26.6.03


Vá, það er greinilega langt síðan ég bloggaði síðast. Útlitið hefur breyst til muna í "skrifumhverfinu" . Eins gott að fara að athuga hvort einhverjar róttækar breytingar hafa átt sér stað. Hafði nú ekki hugsað mér að halda áfram að blogga neitt að ráði en það er svo gaman að skrifa smá og leyfa fjölskyldunni að fylgast með hvað er að gerast.

Mikið vatn runnið til sjávar síðan ég skrifaði síðast. Þá var víst verið að skíra "Litla Björn" sem nú heitir Arnar Bjarki. Hann er orðinn 4 mánaða sundgarpur, sprækur og klár. Við erum búin að vera öll heima í sumarfríi. Verið að bralla eitt og annað en lítið farið úr bænum fram að þessu. Skruppum nokkra daga í sumarhús í Hveragerði. Erum á leiðinni til Vestmannaeyja á þriðjudaginn. Ætlum að vera í viku. Helgina 4, 5 og 6. júní er mikið um að vera í Eyjum því þá eru 30 ár liðin frá goslokum. Af því tilefni verður haldin mikil goslokahátíð. Býst við að hitta þar marga af gömlu skólafélögunum sem og aðra vini og ættingja.
Skráði mig í tvo kúrsa í sumar og mætti galvösk í innilotuna (3 dagar samfleytt). Kúrsarnir sem ég skráði mig í voru Fjarnám og kennsla hjá Láru Stefánsdóttur og Hugbúnaður og margmiðlun hjá Stefáni Jökulssyni. Í innilotunni kom í ljós að kúrsinn hjá Láru var farinn af stað með trukki og dýfu og ég misst af byrjuninni. Búið að skila verkefni o.fl. Í stuttu máli sagt þá náði ég mér nú aldrei á strik í þeim kúrsi því ég var að skíra helgina eftir innilotuna og dróst þá enn meira aftur úr þannig að ég tók ákvörðun um að segja mig úr kúrsinum. Ætla bara að vera hjá Stefáni og veita Arnari Bjarka og fjölskyldunni allan þann umfram tíma sem ég hef. Þau eiga það víst skilið eftir alla vinnuþrælkunina undanfarin ár!!! Sá að Kristín Steinars er áfram dugleg að blogga, gaman af því. Ætla að gefa mér tíma og sjá hvort einhverjir fleiri halda áfram. Gaman að fylgjast með hvað fólkið er að bauka!!!


25.6.03


Stóðst ekki mátið að skella mér örlitla stund í tölvuna meðan litli snúðurinn sefur. Hef verið að renna yfir bloggið hjá mannskapnum til að verða einhvers vísari um Akureyrarferðina sem ég missti af. Það virðist alltaf vera svipað upp á teningnum með þessa UT-ráðstefnu. Öll áhugaverðu erindin sem mann langar til að sjá eru á sama tíma!! En eru erindin ekki birt á Netinu eða í það minnsta aðalatriðin úr þeim?? Ég þarf að athuga málið, ef einhver veit hvar það er að finna væri vel þegið að fá smá nótu.
Annars snýst lífið þessa dagana um bleyjuskipti og svefn. Við höfum líka reynt að standa okkur í að setja nýjar myndir inn á systkinavefinn fyrir vini og ættingja. Ég hef notast jöfnum höndum við Dreamweaver og Frontpage til að vinna með vefsíðurnar. Varðandi myndvinnsluna þá er ég alveg gift Photoshop ennþá. Er ekki búin að ná sáttum við Fireworks. Ég ætla að láta það hafa sinn tíma. Nú er mig farið að hlakka til að geta farið út að ganga með barnavagninn og fá smá ferskt loft í lungun. Veðrið hefur verið með eindæmum gott og vonandi að það haldist eitthvað áfram.


9.6.03


"Litli Björn" var skírður í Garðakirkju í Garðabæ í gær, hvítasunnudag 8. júni. Drengurinn hlaut nafnið Arnar Bjarki og er Björnsson. Arndís stóra systir hélt á bróður sínum undir skírn. Allt gekk mjög vel og skírnarbarnið og Arndís stórar systir stóðu sig vel sem og Arnar Þór sem söng í kirkjunni. Síðan var haldið heim á leið í heljarinnar skírnarveislu. Rétt rúmlega fjörtíu manns heiðruðu okkur með nærveru sinni. Það voru mun fleiri en ég þorði að vona því hvítasunnuhelgin er jú fyrsta mikla ferðahelgi sumarsins. Ég bjóst því við allt að 40-50% afföllum. En nú er veisluhaldinu lokið og við tekur hversdagslegt amstur. Ég verð víst að snúa mér að kúrsunum tveimur sem ég ætla að ljúka í sumar. Ég er svo óheppinn að hafa misst af startinu hjá Láru þannig að ég verð að vinna það tap upp. Eins verð ég að ljúka einu verkefni hjá Stefáni. Nóg að gera í þessari viku.

Kærar þakkir til allra þeirra sem aðstoðuðu okkur og heimsóttu okkur á skírnardaginn.


31.5.03


Er frekar montin með mig núna. Ég hringdi látlaust í þjónustuverið hjá Og Vodafone og gafst ekki upp fyrr en nettenginin mín fór að virka. Þegar hún komst loksins í lag tók ég ákvörðun um að breyta skilasíðunni minni og ljúka við hana. Sat sveitt við í kvöld og náði settu markmiði. Vona að skilasíðan mín standist viðmið. Nú get ég farið að snúa mér að bakstri fyrir skírnina og öðru veraldlegu amstri. En strax eftir helgina tekur næsta törn við, innilota í tveimur námskeiðum. Ætli mér sé ekki óhætt að kyssa þetta námskeið bless í bili en ég á örugglega eftir að kíkja hér við annað slagið og á síðu námskeiðsins og heimsækja bloggsvæðin og sjá hverjir verða enn á lífi í bloggheimum!!


30.5.03


Nú er skapið ekki með besta móti. Nettengingin mín hefur verið óvirk í þrjá daga og er ekki enn komin í lag. Fékk að fara í tölvuna hjá mömmu til að lesa póstinn og sinna því bráðnauðsynlegasta m.a. að blogga. Ég er búin að liggja í Og Vodafone og hringja allnokkrum sinnum og fá ýmsar ástæður fyrir þessari bilun. Þeir virðast ekki vera alveg sammála um af hvaða toga bilunin er, vegna breytinga sem þeir eru að gera eða eitthvað í þá áttina eða eitthvað allt annað. Þeir eru heldur ekki alveg sammála um hvenær þetta eigi þá að hrökkva í lag af sjálfu sér!!!!! Síðan er það nú ekkert grín að ná í þetta svokallaða þjónustuver þeirra. Kostar nokkrar hringingar og bið í allt að 30 mín. arg, arg, arg. Af þessum sökum kem ég ekki skilasíðunni minni til skila. Langar því að segja í stuttu máli að ég hef lokið verkefnum námskeiðsins. Ég og Anna Magnea ákváðum að slá nokkrum verkefnum saman í einn stóran vef sem kæmi okkur að gagni í kennslunni. Þennan vef köllum við einfaldlega Norðurlandavefinn. Þar er að finna kennslulýsingu, vefleiðangur, leiðbeiningar um bæklingagerð í publisher, fjölda gagnvirkra verkefna auk texta um Norðurlöndin. Ég mun síðan senda skilasíðuna mína út þegar netsambandið kemst í lag hjá mér. Vona að það komi ekki að sök.

Að lokum við ég þakka öllum samveruna á þessu námskeiði. Það hefur verið gaman að fylgjast með blogginu. Vonandi halda einhverjir áfram að blogga.


27.5.03


Síðasti vinnufundurinn var haldinn í gær varðandi lokaverkefnið okkar. Við vorum bara duglegar og lukum loks við verkið. Hér er Norðurlandavefurinn okkar. Við segjum staðar numið og skilum af okkur verkefninu eins og það lítur út í dag. Við erum bara vel sáttar við þetta og teljum að vefurinn eigi eftir að styðja vel við kennsluna í það minnsta í okkar skóla. Vonum að aðrir geti nýtt sér þetta líka. Við eigum mjög líklega eftir að bæta við þennan vef í framtíðinni t.d. sýnishornum af bæklingum og eyðublöðum fyrir nemendur og kennara varðandi námsmat.

Nú er bara að ljúka við skilasíðuna og kyssa þennan kúrs bless og fara að huga að þeim næsta.


25.5.03


Nú er dagur að kveldi komin enn og aftur. Eurovision afstaðið og þjóðin getur andað léttar. Við stóðum okkur nú alveg ágætlega og þurfum ekki að taka þátt í forkeppni að ári. Maður sat límdur við skjáinn í gær eins og flest allir Íslendingar (þó nokkrir sem ekki vilja viðurkenna það) og gerði því lítið í vefmálum það kvöldið. Ég og Anna Magnea vorum að hugsa um að hittast í dag og fara að ljúka vefnum en hún var fremur þreytt, fannst eins og vörubíll hefði lent á sér, þannig að við blésum það af og erum að hugsa um að herða okkur upp og hittast á morgun mánudag og taka eina góða lotu. Síðan verðum við að fara að snúa okkur að öðrum störfum. Skólaárinu að ljúka, ný námskeið að byrja og ég að undirbúa skírn. Ætla að skíra snúlla litla á hvítasunnudag. Allt kemur þetta með kalda vatninu!!!


22.5.03


Nú fer að líða að því að við segjum gagnvirku síðuna góða í bili. Við erum búnar að setja út allflest verkefnin í bili en það er alls ekki útilokað að við bætum við þegar tími gefst til. Nú þurfum við að leggjast í yfirlestur á vefnum. Erum búnar að reyna við nokkra nemendur þ.e. fá þá til að prófa gagnvirku verkefnin, það er gott upp á að koma auga á gallana. Við eigum þá eftir að safna saman krækjum á verkefni sem til eru á Netinu um Norðurlöndin og setja upp á verkefnasíðunni. Þar verður n.k. hugmyndabanki um hvað er hægt að gera í tengslum við kennsluna um Norðurlöndin. Oft þarf verkefni fyrir duglegu nemendurna sem ljúka mjög fljótt og eins fyrir hins sem þurfa kannski aðeins öðruvísi nálganir. Við verðum síðan að fara að gefa þetta verkefni frá okkur í bili og snúa okkur að næstu verkefnum. Ýmislegt sem bíður okkar.


20.5.03


Ekki mikið búið að gerast með vefinn okkar yfir helgina. Vorum báðar hlaðnar öðrum skyldum. Áttum að vísu yndislega kvöldstund á föstudagskvöldið þ.e. undirrituð, Anna Magnea, Guðrún Björg kennsluráðgjafi í Garðaskóla í Garðabæ og Steinunn Hall kennsluráðgjafi í Flataskóla. Það tengdist ekkert tölvum heldur förðun. Byrjuðum á snyrtistofu Jónu í Hamraborginni í kennsluförðun í u.þ.b. 4 klst. Þaðan héldum við á Hornið að borða og enduðum á Vínbarnum. Alveg frábært! Óhætt að mæla með henni Jónu. Á sunnudeginum fór ég síðan í heimsókn í Hveragerði og afmælisveislu í Hafnarfirði og því ekkert unnið þann daginn. Í gær mánudag fór ég síðan að eiga við tvö gagnvirk verkefni, laga þau til og ljúka. Við Anna Magnea hittumst síðan í kvöld og tökum lokasprettinn. Ætli við verðum síðan ekki í sambandi með tölvupósti varðandi yfirlestur og lokafrágang. Þá erum við farnar að sjá fyrir endann á þessum áfanga og ekki seinna vænna að fara að huga að skráningu í námskeið vegna haustannar.

Bestu sólarkveðjur úr Hafnarfirðinum

Elísabet


17.5.03


Erum frekar stoltar af okkur núna. Sáttum sveittar í allt kvöld að ljúka við útlit á gagnvirku síðunni og að koma út gagnvirku verkefnunum. Við náðum að ljúka við að hanna 3 lógó fyrir blönduðu verkefnin og setja út slatta af gagnvirku verkefnunum m.a. eitt um hvert land og þessi blönduðu. Pörunarverkefnin verða að bíða betri tíma, svo og 6 önnur verkefni m.a. kortaverkefni. Ég verð nú bara að segja að við stöndum okkur skratti vel svona saman. En ég held að við séum búnar að sprengja tímaskalann í þetta verkefni algjörlega óháð því hvort þetta sé nákvæmlega það sem við eigum að vera að gera eða ekki. Höfum sent Salvöru bréf varðandi það mál og bíðum spenntar eftir svari. Við Anna Magnea getur verið létt steiktar þegar við töpum okkur í svona fantasíum. Þá er ekki til veröld fyrir utan prójektið okkar!!!! Nú er bara að finna nokkur góð kvöld í viðbót svo við getum lokið við þetta gæluverkefni. Höfum fengið góð viðbrögð við verkefninu bæði í Hofsstaðaskóla og Flataskóla í Garðabæ. Það er mjög gott að fá góðar ábendingar um allt sem betur má fara. Nú höfum við ákveðið að leggja árar í bát í kvöld, erum farnar að sjá stjörnur enda klukkan langt gengin í eitt og við þurfum að vakna snemma á morgun.


14.5.03


Kíkti með litla snúlla upp í Hofsstaðaskóla í dag. Hann fékk mikla athygli hjá konunum og var mjög ánægður með það og brosti hringinn. Stefnir í að hann verði mikill kvennamaður. Við gengum síðan saman þrjár úr Hofsstaðaskóla, allar nýbakaðar mæður með börnin. Örkuðum allan Garðabæ á enda í u.þ.b. 2 klukkutíma og ræddum um allt milli himins og jarðar. Síðan var komið heim, stoppað þar í stuttan tíma og síðan haldið í tækjasalinn í Sjúkraþjálfaranum og hamast í klukkustund eða svo. Næst var brunað í búð og heim. Eftir kvöldmat var síðan sest við tölvuna til að þoka lokaverkefninu áfram.

Nú er krækjusíðan komin á Netið. Það á að vísu eftir að fínpússa hana og tryggja að allar krækjurnar virki. Það þarf að laga í það minnsta tvær, á eftir að skoða þetta örlítið betur. Það er nú meiri tíminn sem fer í svona dútl. Síðan eigum við Anna Magnea eftir að halda svona 1-2 góða vinnufundi til að ljúka verkinu þ.e. að koma gagnvirku verkefnasíðunni fyrir og lesa yfir vefinn og fínpússa. Gott að sjá fyrir endann á þessu í bili. Annars er ég nú ekki sátt við útlitið á krækjusíðunni en það má alltaf vinna í því síðar. Það er jú eftir allt saman innihaldið sem skiptir mestu máli og að þetta sé skýrt og aðgengilegt.


12.5.03


Sólarmegin í lífinu

Verkefnið okkar gengur ágætlega. Erum farnar að sjá fyrir endann á því á næstunni vonandi. Eyddi dágóðum tíma í dag í að safna saman krækjum á krækjusíðuna og krækjum á frægt fólk. Tókst að finna frægt fólk í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi en verð að játa fávisku mína á frægu fólki á hinum Norðurlöndunum. Man ekki í augnablikinu eftir neinum í Færeyjum, Grænlandi eða Álandseyjum. Hér væru góðar ábendingar vel þegnar. Mér finnst þetta krydda vefinn örlítið og gera hann skemmtilegri fyrir börn og unglinga. Leyfði mér að vera svo bjartsýnni í dag að ég labbaði í bæinn og keypti sólgleraugu á "Litla Björn". Annars er eitthvað verið að spá í að skreppa í sólina næsta haust, svona rétt áður en maður fer að vinna aftur.



"Litli Björn" í sólinni


11.5.03


Ótrúleg kosninganótt eða sólarhringur má víst segja. Ég leyfði mér nú ekki að vaka frameftir vegna þess að maður veit aldrei hvenær litla lifandi vekjaraklukkan ákveður að hringja. Annars er hann nú hið besta barn, sefur vanalega til 5:00 og drekkur þá og sefur áfram til 8:30. Ég sá hins vegar lokatölurnar berast af Suðurlandinu þegar ég kveikti á sjónvarpinu í morgun, rétt til þess að upplifa Ingibjörgu Sólrúnu hrynja út af Alþingi eftir mjög stutta "dvöl". Svona er nú lífið! En Lára er víst orðin þingmaður og óska ég henni alls hins besta á nýjum vettvangi. En það var nú ekki dvalið lengi við niðurstöður kosninga því til stóð að lyfta grettistaki í kennsluvefnum um Norðurlöndin í dag. Anna Magnea var mætt á þröskuldinn hjá mér strax um 10:00. Síðan þá höfum við setið sveittar og afrekað ýmislegt. Við erum bara nokkuð sáttar við dagsverkið þó ýmislegt sé eftir. Við eigum eftir að ljúka krækjusíðunni, síðunni með gagnvirku verkefnunum, snurfusa textana um Norðurlöndin og fátt eytt lítið sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Við skemmtum okkur konunglega yfir að eyða ómældum tíma í að búa til mynd fyrir gagnvirku síðuna. Vildum ekki hafa þessa geldu töflu enn og aftur með krækjum á verkefnin. Klipptum því fána Norðurlandanna saman og drógum þá að húni á litlum grasbletti, alla í röð. Síðan er hugmyndin að gera hotspot þannig að hægt sé að smella á viðeigandi fána og fá krossaspurningaverkefni. Sniðugt-veit ekki! En okkur þótti þetta voða sniðugt í dag.


Heim